Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 24. júní 2019 15:35
Brynjar Ingi Erluson
Sonur Jose Antonio Reyes semur við Real Madrid
Reyez Lopez á æfingasvæði Real Madrid
Reyez Lopez á æfingasvæði Real Madrid
Mynd: Heimasíða Real Madrid
Spænski knattspyrnumaðurinn Jose Antonio Reyes lést í hræðilegu bílslysi fyrr í þessum mánuði en sonur hans Reyes Lopez samdi í dag við spænska stórliðið Real Madrid.

Reyes Lopez er 11 ára gamall og hefur verið á mála hjá Leganes síðustu ár en Florentino Perez, forseti Real Madrid, lofaði fjölskyldu Reyes að hugsa vel Reyes Lopez eftir að Jose Antonio lést.

Hann gerði þá samkomulag við Madrídinga og skrifaði í dag undir samning við félagið.

Jose Antonio var að keyra bifreð sinni á 220 kílómetra hraða er hann missti stjórn á bílnum. Reyes og frændi hans voru úrskurðaðir látnir á staðnum.

Jose Antonio lék með félögum á borð við Sevilla, Arsenal, Atlético Madrid og Benfica.
Athugasemdir
banner
banner
banner