Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool á Englandi, er orðinn spenntur fyrir næsta tímabili og telur hann að framtíðin sé afar björt.
Hollenski varnarmaðurinn hefur verið potturinn og pannan í varnarnleik Liverpool frá því hann kom í janúar á síðasta ári en hann hefur farið tvisvar með liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu og átti stóran þátt í því er liðið náði í 97 stig í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Hann fagnaði vel og innilega með liðinu er það vann Tottenham Hotspur í úrslitum Meistaradeildarinnar í Madríd fyrr í þessum mánuði og getur hann ekki beðið eftir næsta tímabili.
„Framtíðin er afar björt. Við erum með frábært lið og með leikmenn sem vilja þróa leik sinn og gefa allt sem þeir geta fyrir þennan klúbb," sagði Van Dijk við heimasíðu Liverpool.
„Það eru mikil gæði í liðinu og stundum fattar maður ekki alveg hversu öflugur þessi hópur er. Ekki bara leikmennirnir sem byrja heldur einnig þeir sem eru á bekknum og vilja leggja sig alla fram fyrir liðið. Eins og ég segi framtíðin er ótrúlega björt," sagði hann í lokin.
Athugasemdir