Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. júní 2020 13:55
Elvar Geir Magnússon
Arthur fær þrefalt hærri laun hjá Juventus
Arthur (fyrir miðju) er sagður vera á leið til Juventus.
Arthur (fyrir miðju) er sagður vera á leið til Juventus.
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar segja að miðjumaðurinn Arthur muni samþykkja tilboð frá Juventus og laun hans muni þrefaldast frá samningnum við Barcelona.

Barcelona samþykktir tilboð frá Ítalíumeisturunum í Brasilíumanninn: 15 milljónir evra og Miralem Pjanic sem fer öfuga leið. Óvíst var hvort Arthur myndi samþykkja félagaskiptin.

Calciomercato segir að Arthur muni fá 5,5 milljónir evra á tímabili fyrir utan bónusgreiðslur.

Ítalska heimasíðan segir að verið sé að leggja lokahönd á samkomulagið en Mundo Deportivo tekur undir þann fréttaflutning.
Athugasemdir
banner
banner
banner