Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 24. júní 2020 14:15
Magnús Már Einarsson
Bruno Fernandes átti plakat af Stephen Ireland
Stephen Ireland
Stephen Ireland
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, hefur komið af krafti inn í ensku úrvalsdeildina síðan hann kom frá Sporting Lisabon í janúar.

Stephen Ireland, fyrrum miðjumaður Manchester City, segir að Bruno hafi verið mikill aðdáandi sinn á yngri árum.

Irelandi hitti Bruno á dögunum og fékk skemmtilegar sögur frá honum.

„Hann sagði mér að sem barn hefði hann átt plakat af mér. Hann sagðist alltaf hafa keypt mig þegar hann spilaði Football Manager," sagði Ireland.

„Ég sagði, 'Þú áttir plakat af mér? Keyptiru mig í alvörunni í Football Manager?' Hversu skrýtið er það."
Athugasemdir
banner
banner
banner