„Bara flott, ég held við höfum bara verið sprungnir þarna í restina, þetta var farið að slitna í sundur og opnuðust svæði sem við ætluðum að loka en það er bara eðlilegt þegar þú ert ekkert með boltann," sagði Brynjar Skúlason þjálfari Leiknismanna eftir 3-0 tap gegn Stjörnuni í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
„Þeir voru búnir að fá ég man ekki þrjú skot í stöng í fyrri hálfleik þannig það lá alveg í loftinu að þeir voru að fara skora en ég held bara þetta hafi verið þreyta í mönnum."
„Þeir voru búnir að fá ég man ekki þrjú skot í stöng í fyrri hálfleik þannig það lá alveg í loftinu að þeir voru að fara skora en ég held bara þetta hafi verið þreyta í mönnum."
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 0 Leiknir F.
Sér Brynjar fram á það að fá til sín fleiri leikmenn fyrir lok sumargluggans?
„Ég er alltaf til í að fá fleiri leikmenn sko, ég held að þetta hafi verið hópurinn sem við höfum úr að moða, við mættum hérna með 16 menn og það er bara ekki nóg þegar þú ert að spila í svona stuttu tímabili þegar það eru 2-3 leikir í viku."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir