mið 24. júní 2020 13:07
Magnús Már Einarsson
Lampard: Ekkert tilboð í Havertz
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, segir að félagið hafi ekki lagt fram tilboð í Kai Havertz miðjumann Bayer Leverkusen.

Hinn tvítugi Havertz hefur verið sterklega orðaður við Chelsea að undanförnu en Bayern Munchen og Real Madrid hafa einnig sýnt honum áhuga.

„Hann er topp leikmaður en ég ætla klárlega ekki að tjá mig um leikmenn hjá öðrum liðum. Einbeiting okkar getur ekki verið þar," sagði Lampard.

„Við höfum ekki lagt fram neitt tilboð."

Chelsea hefur þegar keypt Timo Werner frá RB Leipzig og Hakim Ziyech frá Ajax fyrir næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner