Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 24. júní 2020 14:00
Fótbolti.net
Mannvirkjanefnd KSÍ deilir 29,5 milljónum í 20 verkefni
Gervigras var lagt á Kópavogsvöll í fyrra.
Gervigras var lagt á Kópavogsvöll í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á fundi stjórnar KSÍ 18. júní síðastliðinn kynnti Ingi Sigurðsson formaður mannvirkjanefndar yfirferð og tillögu nefndarinnar um úthlutun úr mannvirkjasjóði KSÍ 2020.

Á fundi stjórnar KSÍ 18. júní síðastliðinn kynnti Ingi Sigurðsson formaður mannvirkjanefndar yfirferð og tillögu nefndarinnar um úthlutun úr mannvirkjasjóði KSÍ 2020.

Stjórnin fór ítarlega yfir tillögu mannvirkjanefndar og yfirfór einnig þær umsóknir sem fengu ekki úthlutanir.

Stjórn KSÍ samþykkti neðangreinda úthlutun styrkja til þeirra samþykktu umsókna sem byggja á niðurstöðu skorkorts nefndarinnar. Alls er um að ræða 20 verkefni og er heildarúthlutun 29,5 milljónir króna.

Afturelding - Knatthús - kr. 2.500.000
Breiðablik - Endurnýjun gervigras í Fagralundi, hitalagnir, girðing o.fl. - kr. 1.500.000
Breiðablik - Flóðlýsing á Kópavogsvelli - kr. 1.750.000
Breiðablik - Gervigras á Kópavogsvöll, hitalagnir og vökvunarkerfi - kr. 2.500.000
Breiðablik - Ný vallarklukka á Kópavogsvelli - kr. 500.000
Breiðablik - Ný vallarklukka í Fífunni - kr. 500.000
Breiðablik - Ný varamannaskýli á Kópavogsvelli - kr. 600.000
FH - Endurnýjun grasæfingasvæðis í Kaplakrika - kr. 1.000.000
FH - Nýbygging, knatthúsið Skessan - kr. 3.250.000
FH - Gervigras í knatthúsið Skessuna - kr. 1.000.000
Fylkir - Ný varanleg varamannaskýli við aðalvöll - kr. 600.000
Grótta - Stækkun stúku og aðstöðusköpun á Vivaldi vellinum - kr. 2.500.000
HK - Vökvunarbúnaður fyrir gervigras í Kórnum - kr. 600.000
HK - Inni battavöllur í Kórnum - kr. 500.000
ÍBV - Nýir búningsklefar á Hásteinsvelli - kr. 4.250.000
KR - Endurnýjun og umbætur sparkvallar - kr. 1.750.000
Leiknir F - Endurnýjun gervigrass í Fjarðarbyggðahöll - kr. 2.500.000
Reynir S - Ný vallarklukka á Sandgerðisvelli - kr. 500.000
Valur - Endurnýjun á búningsklefum fyrir aðalvöll á Hlíðarenda - kr. 600.000
Valur - Ný sæti í áhorfendastúku á Hlíðarenda - kr. 600.000
Athugasemdir
banner
banner