Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. júní 2020 11:00
Elvar Geir Magnússon
Thiago orðaður við Liverpool
Thiago á æfingu hjá Bæjurum.
Thiago á æfingu hjá Bæjurum.
Mynd: Getty Images
Þýska blaðið Bild segir að Liverpool hafi mikinn áhuga á að fá spænska miðjumanninn Thiago Alcantara en viðræður hans við Bayern München eru sagðar hafa siglt í strand.

Samningur þessa 29 ára spænska landsliðsmanns við Þýskalandsmeistarana rennur út sumarið 2021 og ekki er útlit fyrir að hann muni gera nýjan samning.

Bild segir að leikmaðurinn vilji fá nýja áskorun utan Þyskalands.

Jurgen Klopp ku lengi hafa verið aðdáandi leikmannsins og vilji fá hann á Anfield. Einnig er talað um möguleika á því að Thiago fari aftur til Barcelona.

Thiago hefur spilað 35 leiki fyrir Bayern á tímabilinu og skorað þrjú mörk í Bundesigunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner