Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. júní 2021 19:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimir kemur ekki að markvarðarvali - „Hef ekki hugmynd"
Sveinn Sigurður fær tækifæri.
Sveinn Sigurður fær tækifæri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn Sigurður Jóhannesson fær tækifæri í markinu hjá Íslandsmeisturum Vals gegn Leikni í Mjólkurbikarnum í kvöld.

Hannes Þór Halldórsson hefur verið algjörlega frábær í markinu hjá Val í Pepsi Max-deildinni, en hann er hvíldur.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, var í viðtali við Stöð 2 Sport þar sem hann var spurður út í ákvörðunina að taka Hannes úr liðinu og byrja með Svein.

„Ég hef ekki hugmynd. Það er eitt sem ég skipti mér ekkert að og það er þjálfun markvarða í Val. Eiríkur Þorvarðarson sér algjörlega um það," sagði Heimir spurður að því hvort Hannes væri þreyttur.

„Ef þú vilt fá einhverjar upplýsingar um það af hverju Svenni er í markinu, þá þarftu að spyrja hann."

Leikurinn var að hefjast en hægt er að frá í beina textalýsingu með því að smella hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner