Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 24. júlí 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ben White ekki á leiðinni aftur til Leeds
Ben White.
Ben White.
Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Ben White mun að öllum líkindum ekki spila með Leeds í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Hinn 22 ára gamli White lék með Leeds á láni frá Brighton á þessu tímabili og stóð sig prýðilega. Hann smellpassaði inn í leikkerfi Marcelo Bielsa og talið er að félagið vilji kaupa hann.

Graham Potter, stjóri Brighton, telur að White sé tilbúinn í ensku úrvalsdeildina og ætlar ekki að lána hann eða selja hann.

„Hann er okkar leikmaður og hann er með langtímasamning hérna. Ég hef vitað af honum lengi og vildi kaupa hann til Swansea," segir Potter.

„Hann á eftir að verða leikmaður í hæsta gæðaflokki."

White, sem er samningsbundinn Brighton til 2022, hefur einnig verið orðaður við Manchester United og Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner