Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. júlí 2020 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Engin tilboð í Thiago sem orðaður er við Liverpool
Thiago hefur mest verið orðaður við Liverpool.
Thiago hefur mest verið orðaður við Liverpool.
Mynd: Sjónvarp Símans
Enn hafa engin tilboð borist til Bayern München í spænska miðjumanninn Thiago Alcantara.

Þetta segir Karl-Heinz Rummenigge, framkvæmdastjóri þýska stórveldisins.

Thiago er spænskur miðjumaður sem steig sín fyrstu meistaraflokksskref með Barcelona fyrir rúmum áratugi síðan. Hann er búinn að vinna frábært starf fyrir Bayern undanfarin ár en leitar nú að nýrri áskorun.

Hinn 29 ára gamli Thiago hefur hvað mest verið orðaður við Englandsmeistara Liverpool.

„Hann tjáði okkur það að hann vilji klára ferilinn á nýjum stað. Hingað til hefur ekkert félag haft samband," segir Rummenigge.
Athugasemdir
banner
banner