Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. júlí 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Lingard biður Sancho um að koma til Man Utd
Jadon Sancho.
Jadon Sancho.
Mynd: Getty Images
Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, vill fá Jadon Sancho til félagsins frá Borussia Dortmund.

Sancho hefur verið sterklega orðaður við Manchester United undanfarna mánuði og Lingard vonast til að hann komi til félagsins.

Talið er að Dortmund vilji fá allt að 100 milljónir punda fyrir Sancho.

„Jadon er stórkostlegur leikmaður. Þetta veltur auðvitað á honum," sagði Lingard.

„Ég hef séð hann með enska landsliðinu. Ég hef séð gæðin hjá honum og ég held að hann verði frábær viðbót fyrir hvaða lið sem er."
Athugasemdir
banner
banner