Það gengur brösuglega hjá liði KV í 2. deild karla þessa dagana en liðið mætti Magna Grenivík í dag.
KV þurfti að sætta sig við 3-1 tap á útivelli og var að tapa sínum þriðja leik í síðustu fjórum umferðum.
KV tapaði gegn bæði Völsungi og Þrótti Vogum en vann svo Kára með tveimur mörkum gegn engu þann 15. júlí.
Magni var að vinna sinn fjórða leik í sumar og er í áttunda sæti deildarinnarm eð 17 stig. KV er í fjórða sætinu með 22 stig, einu stigi á eftir KF sem er í því öðru.
Á sama tíma áttust við KF og Kári en þar hafði KF betur með tveimur mörkum gegn einu.
KF lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum en Kári situr enn í fallsæti og er á leið niður í 3. deild með þessu áframhaldi.
Magni 3 - 1 KV
1-0 Tómar Arnarson('14)
2-0 Guðni Sigþórsson('28)
2-1 Markaskorara vantar('39)
3-1 Markaskorara vantar('84)
KF 2 - 1 Kári
0-1 Ármann Ingi Finnbogason('22)
1-1 Oumar Diouck('29)
2-1 Áki Sölvason('62)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir