Fotbolti.net
24.07.21 - 18:07
Elvar Geir Magnússon

Jón Þór: Vorum algjörlega á hælunum

Jón Þór: Vorum algjörlega á hælunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Lengjudeildin
Jón Þór Hauksson, þjálfari Vestra, var allt annað en sáttur við spilamennsku síns liðs í 1-2 tapi gegn Selfossi í Lengjudeildinni í dag.

„Þetta voru mikil vonbrigði í dag. Við vorum algjörlega á hælunum og náðum ekki neinum takti í okkar leik. Við komumst aldrei í gang og Selfoss fer héðan með verðskuldaðan sigur," segir Jón Þór.
„Annan leikinn í röð fáum við á okkur klaufalegt víti sem auðveldlega á að vera hægt að koma í veg fyrir. Þetta eru vonbrigði og við þurfum að vera fljótir að koma okkur inn í þetta. Það er gott að það er stutt í næsta leik, við eigum leik strax á miðvikudag."

Þetta var annar leikur Vestra undir stjórn Jóns Þórs en liðið vann nauman sigur gegn Þrótti í síðustu umferð. Vestri siglir lygnan sjó í Lengjudeildinni, liðið situr í sjöunda sætinu.

Selfoss vann gríðarlega mikilvægan sigur í fallbaráttunni og er nú fimm stigum fyrir ofan fallsæti. Dean Martin, þjálfari Selfyssinga, var stuttorður í viðtali eftir leik enda á leið í flug.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.