Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. júlí 2022 23:24
Brynjar Ingi Erluson
Napoli hafnar fyrsta tilboði West Ham í Zielinski
Piotr Zielinski í leik með Napoli
Piotr Zielinski í leik með Napoli
Mynd: Getty Images
Napoli hefur hafnað fyrsta tilboði enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham í pólska miðjumanninn Piotr Zielinski. Sport Italia greinir frá.

West Ham er að leitast eftir því að styrkja miðsvæðið fyrir komandi leiktíð og er Zielinski þar efstur á blaði David Moyes.

Sport Italia segir að West Ham hafi lagt fram 22 milljón punda tilboð í Zielinski en Napoli hafi hafnað því boði.

Napoli vill fá eitthvað í kringum 30 milljónir punda fyrir pólska miðjumanninn sem á tvö ár eftir af samningi. Napoli á möguleika á að framlengja þann samning um ár til viðbótar.

Zielinski er 28 ára gamall og á 72 landsleiki fyrir Pólland, en West Ham er ekki eina félagið sem er að íhuga það að fá hann.

Milan er einnig sagt fylgjast með stöðu hans ef portúgalski miðjumaðurinn Renato Sanches kemur ekki í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner