Fréttamannafundur 13:15 í Laugardal
Erik Hamren, nýr landsliðsþjálfari Íslands, opinberar í dag sinn fyrsta landsliðshóp.
Fótbolti.net er í beinni frá Laugardalsvelli þar sem Hamren opinberar hópinn fyrir fyrstu leikina í hinni nýju Þjóðadeild. Ísland heimsækir Sviss 8. september og tekur á móti Belgíu á Laugardalsvelli 11. september.
Fundurinn verður sýndur í beinni á heimasvæði okkar á Facebook og þá verður bein Twitter lýsing frá öllu því helsta sem fram kemur.
Fundurinn fer fram í kjallaranum á Laugardalsvelli, þar sem fréttamannafundir í kringum leiki eru venjulega.
Hamren og aðstoðarmaður hans, Freyr Alexandersson, sitja fyrir svörum.

Sjá einnig:
Þjóðadeildin: Nýtt útskýringarmyndband frá UEFA
Tweets by Fotboltinet
Athugasemdir