banner
   lau 24. ágúst 2019 11:34
Ívan Guðjón Baldursson
Pedro meiddur af velli í upphitun - Barkley byrjar
Mynd: Getty Images
Pedro var tæpur fyrir leik Chelsea gegn Norwich í dag en átti þó að vera í byrjunarliðinu.

Hann átti erfitt í upphituninni fyrir leik og eftir stuttar samræður við Frank Lampard er búið að staðfesta að Ross Barkley byrjar inná í hans stað.

Mateo Kovacic og Jorginho eru einnig í byrjunarliðinu ásamt Mason Mount. Líklegast er að Mount færi sig framar á völlinn en áhugavert verður að sjá hvort Lampard breyti um leikkerfi eða ekki.

Willian, Michy Batshuayi og Olivier Giroud eru allir á bekknum ásamt Marcos Alonso, Fikayo Tomori og Willy Caballero.
Athugasemdir
banner
banner
banner