FIFA verðlaunaafhendingin er í gangi og nú rétt í þessu var mark Mo Salah gegn Everton kosið besta mark síðasta árs.
Verðlaunin fyrir Puskas verðlaunin að þessu sinni voru veitt Mo Salah fyrir mark hans gegn Everton.
Þá var Didier Deschamps kjörinn þjálfari ársins fyrir frábært heimsmeistaramót er hann leiddi Frakkland til sigurs. Hann þakkaði fyrir sig á hógværan hátt er hann tók á móti verðlaununum.
„Við erum ekkert án leikmanna okkar og ég vil þakka öllu liðinu. Þeir hjálpuðu mér að komast hingað í kvöld. Ég vil þakka starfsliðinu líka,” sagði Deschamps.
THAT sensational derby day strike... 🚀#TheBest #FIFAFootballAwards pic.twitter.com/XOM9G9P5zD
— Liverpool FC (@LFC) September 24, 2018
Athugasemdir