Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 24. september 2020 17:00
Elvar Geir Magnússon
Adrian hjálpar Thiago að aðlagast í Liverpool
Thiago Alcantara.
Thiago Alcantara.
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Adrian hefur hjálpað Thiago Alcantara að aðlagast lífinu á Anfield. Thiago var magnaður í sínum fyrsta leik fyrir Liverpool eftir að hafa komið frá Bayern München í síðustu viku.

Adrian er varamarkvörður Liverpool en leggur meira til hjá félaginu.

„Ég reyni að hjálpa eins mikið og ég get," segir Adrian.

„Þegar ég gekk í raðir félagsins þá kunni ég vel við það hversu mikla aðstoð ég fékk við að koma mér fyrir og kynnast borginni, andanum í félaginu og hugmyndafræðinni."

„Ég vil deila þessu með honum. Ég hef spjallað við hann um félagið. Vonandi mun hann njóta tímabilsins, það verður erfitt en við ætlum að njóta þess með honum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner