Réttarhöld eru í gangi þar sem réttað er yfir Benjamin Mendy og vini hans Louis Saha Matturie sem eru sakaðir um fjölda nauðgana.
Nokkrar nauðganir áttu sér stað í því sem átti að vera gleðskapur heima hjá Mendy þar sem Jack Grealish var viðstaddur. Mendy og Grealish höfðu verið á djamminu ásamt Matturie og ákveðið að bjóða stelpum í eftirpartý.
Grealish er sagður hafa sofið hjá einni stelpunni, sem var 17 ára gömul, en Mendy er ásakaður um að hafa nauðgað sömu stelpu eftir að Grealish sofnaði í kjölfar ástarlotanna og drykkjunnar.
Félagarnir Mendy og Matturie bera fyrir sig minnisleysi og segja að allt kynlíf sem var stundað í partýinu hafi verið með samþykki.
Þeir eru sakaðir um að hafa nauðgað sömu konunum í partýinu á mismunandi stöðum. Matturie gerði það meðal annars í bíl á leiðinni að kaupa fleiri drykki fyrir partýið og í bíóherberginu á meðan Mendy gerði það í svefnherbergi og inni á læstri skrifstofu.
Það mættu fjórar stelpur í eftirpartýið og voru símarnir teknir af þeim öllum við útidyrahurðina þar sem fótboltastjörnur eru fyrirmyndir og kæra sig ekki um að vera myndaðir í annarlegu ástandi. Stelpurnar voru því símalausar og urðu skelkaðari því lengra sem leið á nóttina.
Grealish mun bera vitni í málinu sem og nokkrir aðrir liðsfélagar hans hjá Manchester City.