Fotbolti.net
24.10.22 - 09:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Amorim næst líklegastur - Villa þyrfti að greiða níu milljónir punda

Amorim næst líklegastur - Villa þyrfti að greiða níu milljónir punda
Canon

Mynd: EPA

Rúben Amorim er þegar þessi frétt er skrifuð næst líklegasti stjórinn til þess að taka við starfinu hjá Aston Villa. Portúgalinn sem stýrir Sporting Lissabon í heimalandinu er á eftir Unai Emery á lista veðbanka. Sean Dyche, Brendan Rodgers og Mauricio Pochettino eru svo næstir á lista.

Amorim er samningsbundinn Sporting og þyrfti Aston Villa að greiða tæplega níu milljónir punda fyrir að fá hann til Englands. Þetta herma heimildir Telegraph.
Amorim er 37 ára gamall og tók við starfinu hjá Sporting árið 2020 eftir að hafa stýrt Casa Pia og Braga.

Hann varð deildabikarmeistari sem stjóri Braga og hefur tvisvar sinnum unnið þann titil hjá Sporting. Hann varð þá portúgalskur meistari vorið 2021 sem stjóri Sporting.

Amorim er fyrrum miðjumaður sem varð þrívegis portúgalskur meistari með Benfica og lék fjórtán landsleiki.

Sporting er í dag í 4. sæti deildarinnar, níu stigum á eftir Benfica þegar tíu umferðir eru búnar. Liðið er í Meistaradeildinni og á möguleika á því að fara áfram þegar tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni.

<b>Enski boltinn</b> - Að telja sig vera stærri en félagið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.