Fotbolti.net
25.01.23 - 11:32
Elvar Geir Magnússon

Ten Hag tjáir sig um samningsstöðu Rashford og gagnrýnina á Antony

Ten Hag og Rashford.

Ten Hag og Rashford.

Canon

Mynd: EPA

Erik ten Hag hefur tjáð Marcus Rashford að hann vilji byggja liðið í kringum hann, þessi 25 ára framherji hefur skorað níu mörk í níu leikjum síðan hann kom aftur frá HM.

Rashford á 18 mánuði eftir af samningi sínum en Paris Saint-Germain hefur áhuga á enska landsliðsmanninum.
„Ég held að hann skilji að Man United er hans félag, líka í þessu umhverfi, í þessu liði er hann að spila sinn besta fótbolta. Ég tel að þetta sé besti staðurinn fyrir hann því við viljum smíða lið sem verður það besta, fyrst á Englandi og svo í Evrópu og í heiminum," segir Ten Hag.

„Hann er að bæta sig og er að uppskera það sem hann hefur lagt á sig. Hann er mikilvægur fyrir okkur og við þurfum á honum að halda til að ná þeim árangri sem við viljum ná."

Spilum best þegar Martial er með
Meðan allt er í blóma hjá Marcus Rashford hefur Anthony Martial ekki náð að halda sér frá meiðslalistanum og missir af fyrri undanúrslitaleiknum gegn Nottingham Forest í deildabikarnum í kvöld vegna meiðsla.

„Ég get tekið undir það að hann þarf að vera meira til takst. Hann er mjög mikilvægur fyrir okkur því við spilum best þegar hann er með. Hann þarf að vera meðvitaður um það," segir Ten Hag.

Hægt að ná meiru út úr Antony
Brasilíski vængmaðurinn Antony hefur fengið talsverða gagnrýni en hann var keyptur á 86 milljónir punda síðasta sumar. Gary Neville og Rio Ferdinand voru meðal sérfræðinga sem sögðu Antony ekki vera að skila nægilega miklu.

Antony hefur skorað fimm mörk fyrir United en ekki átt eina einustu stoðsendingu.

„Þegar hann er að spila þá er liðið að vinna. Það sýnir að hann sé að standa sig. Hann getur gert betur, það er svigrúm til bætinga. Það er ekkert launungarmál að við viljum að hann sé beinskeyttari og meiri þátttakandi í leiknum. En eins og ég segi, liðið er að spila vel þegar hann er inni á vellinum. Ég tel að hann hafi þegar bætt sig," segir Ten Hag.

„Hann hefur þegar haft áhrif og skorað mörk. En með hæfileika hans og getu getur hann gert enn betur."
Brasilíumaðurinn Antony.

Brasilíumaðurinn Antony.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Enski boltinn - </b> Landsbyggðin talar um hugarfarsskrímsli

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.