Fotbolti.net
25.02.21 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Ólafur Bjarni í Njarðvík (Staðfest)

Ólafur Bjarni í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvík hefur fengið vinstri bakvörðinn Ólaf Bjarna Hákonarson í sínar raðir frá Stjörnunni.

Hinn tvítugi Ólafur Bjarni er uppalinn hjá Stjörnunni.
Í fyrra spilaði hann sextán leiki í Lengjudeildinni þegar hann var á láni hjá Víkingi Ólafsvík.

Árið 2019 spilaði Ólafur Bjarni tíu leiki á láni hjá KFG í 2. deildinni.

Njarðvík endaði í 4. sæti í 2. deildinni í fyrra en Bjarni Jóhannsson og Hólmar Örn Rúnarsson tóku við þjálfun liðsins í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.