Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 25. mars 2019 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Schär hélt áfram að spila þrátt fyrir þungt höfuðhögg
Mynd: Getty Images
Fabian Schär, varnarmaður Sviss og Newcastle, fékk þungt höfuðhögg er Sviss vann 2-0 sigur á Georgíu í undankeppni EM síðastliðinn laugardag.

Schär lenti í samstuði við Jemal Tabidze, leikmann Georgíu, í fyrri hálfleiknum.

Schär lá meðvitundarlaus eftir. Það þurfti að bregðast fljótt við og það gerði Jano Ananidze, leikmaður Georgíu. Hann forðaði því að Schär myndi kafna á sinni eigin tungu.

Þrátt fyrir þetta þunga högg þá spilaði Schär út leikinn.

„Ég var meðvitundarlaus í nokkrar sekúndur. Ég finn enn til, en þetta var þess virði," sagði Schär.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner