Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 25. mars 2019 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hægt að kaupa myndbandskveðju frá Hólmari Erni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cameo er vefsíða sem gerir fólki kleift að kaupa myndbandskveðjur frá þekktum einstaklingum.

Nánar er hægt að lesa um þetta fyrirbæri á vef New York Times.

Fréttablaðið vekur athygli á því að landsliðsmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson hafi sett upp reikning á vefsíðunni. Hólmar setti upp reikninginn sinn í febrúar og hefur sent frá sér tvær kveðjur nú þegar.

Smelltu hér til að fara á reikning Hólmars. Hægt er að kaupa myndbandskveðju frá honum fyrir 10 dollara, eða rúmar 1200 íslenskar krónur.

Hólmar er 28 ára gamall og er hann á mála hjá Levski Sofia í Búlgaríu. Hann er þessa stundina að glíma við erfið meiðsli.

Hann á að baki 12 A-landsleiki og hefur hann skorað eitt mark í þeim.
Athugasemdir
banner
banner
banner