Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. mars 2019 13:22
Elvar Geir Magnússon
París
Líklegt byrjunarlið Frakklands
Icelandair
Kylian Mbappe, leikmaður Frakklands.
Kylian Mbappe, leikmaður Frakklands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimsmeistarar Frakklands munu tefla fram gríðarlega sterku liði gegn Íslandi í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:45 að íslenskum tíma.

Le Parisien spáir því að Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakka, haldi sig við sama byrjunarlið og vann Moldavíu í síðustu viku.

Umtiti, leikmaður Barcelona, ætti að vera klár en hann gæti verið hvíldur í ljósi þess að hann hefur lítið spilað á tímabilinu vegna meiðsla. Kimpembe gæti þá komið inn í staðinn en hann gerði dýr mistök í 2-2 jafnteflinu gegn Íslandi í október.

Stuðlar Bet365 veðmálafensins gefa skýra mynd af því hversu mun sigurstranglegri Frakkar eru. Stuðullinn á Frakkasigur er 1,16 en 23,0 á íslenskan sigur. Jafntefli gefur stuðulinn 8,0.



Sjá einnig:
Líklegt byrjunarlið Íslands
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner