Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 25. mars 2020 19:00
Magnús Már Einarsson
Longstaff bræður skipta um umboðsmenn - Fara þeir í sumar?
Matty Longstaff.
Matty Longstaff.
Mynd: Getty Images
Sean og Matty Longstaff, miðjumenn Newcastle, eru báðir að skipta um umboðsmenn þessa dagana.

Longstaff bræðurnir hafa vakið athygli hjá Newcastle og möguleiki er á að þeir rói á önnur mið í sumar.

Hinn tvítugi Matty Longstaff verður samningslaus í sumar og önnur félög mega byrja að ræða við hann.

Ítölsk félög hafa sýnt Matty áhuga og það gæti orðið erfitt fyrir Newcastle að sannfæra leikmanninn um að vera áfram hjá sér.

Hinn 22 ára gamli Sean Longstaff hefur einnig vakið áhuga hjá öðrum félögum en hann var sterklega orðaður við Manchester United í fyrrasumar.
Athugasemdir
banner
banner