Selfoss er spáð níunda sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Samhliða spánni er einn leikmaður í hverju liði sem sýnir á sér hina hliðina.
Hjá Selfossi er það Anna María Friðgeirsdóttir sem sýnir á sér hina hliðina.
Þú getur keypt Önnu Maríu í Draumaliðið þitt. Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsdeild Eyjabita og Fótbolta.net!
Hjá Selfossi er það Anna María Friðgeirsdóttir sem sýnir á sér hina hliðina.
Þú getur keypt Önnu Maríu í Draumaliðið þitt. Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsdeild Eyjabita og Fótbolta.net!
Fullt nafn: Anna María Friðgeirsdóttir
Gælunafn: Maja
Aldur: 27
Hjúskaparstaða: Single
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2009
Uppáhalds drykkur: Vatn eða kaffi
Uppáhalds matsölustaður: Sushi social
Hvernig bíl áttu: Toyota Avensis
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Game of Thrones
Uppáhalds tónlistarmaður: Get alltaf treyst á mína menn í Coldplay
Uppáhalds samskiptamiðill: Instagram
Fyndnasti Íslendingurinn: Sólmundur Hólm
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Jarðarber, snickers og karamelludýfu, lykilatriði að hræra mjög lítið!
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Evrópa, EES lönd: símtöl og SMS á 0 kr…
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei að segja aldrei, en líklega aldrei KR
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Þær voru nokkrar mjög góðar í landsliði Nígeríu
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Alfreð Elías og Gunnar Borgþórsson
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Ruth Þórðar Þórðardóttir
Sætasti sigurinn: Sigur í undanúrslitum í bikar móti Fylki 2014, eftir vítaspyrnukeppni
Mestu vonbrigðin: Að tapa í bikarúrslitum 2015
Uppáhalds lið í enska: Arsenal
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Væri alveg nice að hafa Cloé Lacasse með sér í liði
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ: Fleiri full-sized innanhús hallir
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Hallgrímur Mar
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Heiðdís Lillýardóttir
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Leo Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Nadía, ekki spurning!
Uppáhalds staður á Íslandi: Selfoss
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Hrafnhildur Hauksdóttir gaf dómaranum rauðaspjaldið síðasta sumar, eftir að hann missti það í miðjum leik.
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Slökkva ljósin
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, ég er harður NFL aðdáandi, svo fylgist ég með handboltanum og körfuboltanum hérna heima og Formula1 þegar tími gefst.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Dönsku
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: Gleðibankinn! Hljótum að fá að senda það aftur!
Vandræðalegasta augnablik: Líklega þegar ég hljóp á fullri ferð á stöngina í æfingaleik á Spáni, það var vandræðalegt…
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Brynju Valgeirs, Ernu Guðjóns og Magdalenu, yrði allavegana ekki leiðinlegt hjá okkur
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Er með óeðlilega litla fætur og nota skó nr 35
Athugasemdir