Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 25. apríl 2019 16:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna B-deild: Fylkir tryggði sér sigur
Ída Marín skoraði fyrir Fylki.
Ída Marín skoraði fyrir Fylki.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
HK/Víkingur 0 - 1 Fylkir
0-1 Ída Marín Hermannsdóttir ('23)

Fylkir gulltryggði sér sigur í B-deild Lengjubikars kvenna þegar liðið mætti HK/Víkingi.

Það var aðeins eitt mark skorað en það gerði Ída Marín Hermannsdóttir fyrir Fylki um miðjan fyrri hálfleikinn. Ída Marín er mjög efnileg en hún er fædd árið 2002.

Fylkir endar Lengjubikarinn með fullt hús stiga og er liðið núna sex stigum á undan FH og er því sigurinn tryggður. HK/Víkingur er á botninum án stiga.

Bæði lið eru í Pepsi Max-deild kvenna sem hefst 2. maí. Fylkir mætir Keflavík í nýliðaslag í fyrstu umferð og HK/Víkingur tekur á móti KR.
Athugasemdir
banner
banner
banner