Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 25. apríl 2019 19:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjubikar kvenna C-deild: Þróttur í úrslit eftir sigur á Hömrunum
Þróttur mætir Tindastól á sunnudag
Linda Líf skoraði annað mark Þróttar í dag.
Linda Líf skoraði annað mark Þróttar í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hamrarnir 0-2 Þróttur R.
0-1 Rakel Sunna Hjartardóttir ('56)
0-2 Linda Líf Boama ('63)

Þróttur R. heimsótti Hamrana í Bogann í seinni undanúrslitaleik C-deildar Lengjubikars kvenna í dag.

Tindastóll vann í dag Völsung, 5-0 í fyrri undanúrslitaleiknum á Sauðárkróki.

Staðan var jöfn í hálfleik í Boganum en á 56. mínútu kom Rakel Sunna Hjartardóttir gestunum í Þrótti yfir.

Sjö mínútum seinna skoraði Linda Líf Boama annað mark Þróttar. Fleiri urðu mörkin ekki og því ljóst að Þróttur mætir Tindastól á sunnudaginn í úrslitaleik.

Leikurinn fer fram klukkan 14:00 á sunnudaginn en leikstaður hefur ekki verið ákveðinn.
Athugasemdir
banner