Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. apríl 2019 17:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meistarakeppni KSÍ: Breiðablik með stórsigur á Þór/KA
Þrjú mörk á fimm mínútum
Sólveig gerði síðustu tvö mörk Blika í dag.
Sólveig gerði síðustu tvö mörk Blika í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Áslaug Munda var frábær hjá Blikum í dag.
Áslaug Munda var frábær hjá Blikum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 5 - 0 Þór/KA
1-0 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ('62)
2-0 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ('64)
3-0 Hildur Antonsdóttir ('67)
4-0 Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ('76)
5-0 Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ('85)
Lestu meira um leikinn hér

Breiðablik mætti í dag Þór/KA í Meistarakeppni KSÍ. Venjulega mætast deildarmeistarar og bikarmeistarar innbyrðis í þessari viðureign en þar sem Breiðablik vann báða titlana í fyrra þá fékk Þór/KA, sem endaði í öðru sæti deildarinnar í fyrra, keppnisréttinn í ár.

Liðin stóðu jöfn þegar þau gengu til búningsklefa í hálfleik en í seinni hálfleik tók Breiðablik öll völd.

Á 62. mínútu brutu Blikar ísinn. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir átti þá góða fyrirgjöf sem Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir skallaði í netið. Tveimur mínútum síðar bætti Áslaug við sínu öðru marki, nú eftir undirbúning frá Karólínu Leu Vilhjálmsdóttir.

Áslaug lagði svo upp þriðja mark Blika þremur mínútum eftir annað markið eftir góðan sprett. Hildur Antonsdóttir fékk boltann frá Áslaugu og kláraði í markið.

Á 76. mínútu skoraði Sólveig Jóhannesdóttir Larsen fjórða mark Blika með skoti sem fór yfir Hörpu Jóhannsdóttur sem var nýkomin inn á sem varamaður í mark Þór/KA.

Sólveig bætti við fimmta marki Blika og öðru marki sínu þegar fimm mínútur lifðu leiks.

Blikar unnu því 5-0 eftir frábæran seinni hálfleik og eru stelpurnar vel að titlinum komnar.

Pepsi Max-deild kvenna hefst 2. maí. Breiðablik heimsækir ÍBV í fyrstu umferð og Þór/KA mætir Val í stórleik 1. umferðar á föstudeginum 4. maí.

Viðtöl úr leiknum koma inn seinna í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner