Sænski sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic er engum líkur.
Zlatan, sem er þekktur fyrir sinn einstaka persónuleika, hefur komið víða við á ferlinum en er í dag hjá Los Angeles Galaxy í MLS-deildinni.
Hann spilaði í 2-1 sigri gegn Houston Dynamo um síðustu helgi og skoraði hann úr vítaspyrnu í leiknum.
Fyrir leikinn átti Zlatan frábæra stund með lukkustráknum sem hann átti að leiða inn á völlinn. Strákurinn viðurkenndi fyrir Zlatan að hann væri stressaður og þá sagði Zlatan við hann:
„Af hverju? Þú ert með mér núna. Gerum þetta saman. Njóttu augnabliksins, njóttu!"
Myndband af þessu er hér að neðan. Í grein Daily Mail segir að strákurinn hafði nýlega misst afa sinn og samkvæmt móður hans hefur hann verið að glíma við kvíða.
Zlatan Ibrahimovic is pure class.
— FutbolBible (@FutbolBible) April 24, 2019
The kid tells him "I'm nervous." Zlatan responds by telling him "Why? You're with me, take it, let's do it together, enjoy the moment, enjoy!" pic.twitter.com/tHvaWj4wfa
Athugasemdir