Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. apríl 2020 10:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alphonso Davies vill verða leikari
Alphonso Davies.
Alphonso Davies.
Mynd: Getty Images
Alphonso Davies, leikmaður Bayern München í Þýskalandi, segist vilja verða leikari einn daginn. Davies, sem er frá Kanada, hefur fengið athygli fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlinum Tik Tok.

Davies er fæddur árið 2000 en hann gekk til liðs við Bayern frá Vancouver Whitecaps árið 2018. Hann framlengdi nýverið samning sinn við Bayern til 2025.

Hann hefur verið magnaður sóknarbakvörður hjá Bayern á þessu tímabili og hefur hraði hans og tækni verið í sviðsljósinu.

Hann ræddi við fyrrum enska landsliðsframherjann Gary Lineker á dögunum og sagði: „Fótbolti er númer eitt hjá mér, en á endanum vil ég verða leikari."

„Mér finnst gaman að skemmta fólki og Tik Tok gefur mér stökkpall til þess."

Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndband sem Davies gerði þar sem hann endurlék atriði úr gamanþáttunum vinsælu Brooklyn 99.


Athugasemdir
banner
banner
banner