Hildur Antonsdóttir er gestur í nýjasta þætti Heimavallarins en þar opinberar miðjumaðurinn öflugi hvaða andstæðingum henni hefur þótt erfiðast að mæta.
Hildur hefur verið einn besti leikmaður efstu deildar síðustu ár og verið í lykilhlutverki hjá sterku liði Breiðabliks. Það er áhugavert að sjá hversu ólíkir leikmennirnir eru sem hún velur sem erfiðustu andstæðinga sína en þær eiga það allar sameiginlegt að eiga sterk einkenni í sínum leik og vera framúrskarandi í sínum styrkleikum.
Hér að neðan má sjá hvaða leikmenn Hildur nefnir og neðst í fréttinni má svo hlusta á nýjasta þátt Heimavallarins.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er nautsterk og gríðarlega hörð í horn að taka, jafnvel fyrir hörkutól eins og Hildi
Fanndís Friðriksdóttir var liðsfélagi Hildar hjá Blikum og Hildur lærði mikið af því að takast á við svo öflugan leikmann á öllum æfingum. Í dag mætast Fanndís og Hildur í stórleikjum Breiðabliks og Vals og láta hvora aðra hafa fyrir hlutunum.
Cloé Lacasse er öskufljót bæði með og án bolta og það er sannkölluð martröð að þurfa að eltast við hana
Athugasemdir