lau 25. apríl 2020 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hudson-Odoi um Sancho: Við erum mjög nánir
Hudson-Odoi og Sancho.
Hudson-Odoi og Sancho.
Mynd: Getty Images
Callum Hudson-Odoi viðurkennir að hann myndi elska að fá Jadon Sancho til Chelsea.

Sancho, sem er tvítugur, hefur verið frábær fyrir Borussia Dortmund en hann er með 15 mörk og 16 stoðsendingar á þessu tímabili. Sancho var hjá Manchester City en yfirgaf félagið 17 ára í leit að meiri spiltíma.

Talið er að Sancho yfirgefi Dortmund aftur í næsta félagaskiptaglugga og fari til Englands. Hann hefur hvað mest verið orðaður við Chelsea og Manchester United.

Hudson-Odoi, efnilegur kantmaður Chelsea, hefur leikið með Sancho í enska landsliðinu og hefði ekkert á móti því að gera það einnig hjá félagsliði. „Við Sancho erum mjög nánir og tölum mikið saman," sagði Hudson-Odoi á Instagram.

„Auðvitað er hann frábær leikmaður og ég elska að spila með honum. Við náum mjög vel saman. Ég veit ekki hvort að hann komi (til Chelsea) en auðvitað væri það mjög gaman."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner