Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. apríl 2020 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Stuðningsmenn Gladbach mæta á heimaleiki
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Borussia Mönchengladbach í þýska boltanum hafa komið saman og látið búa til pappaspjöld með úrklippum af sjálfum sér.

Tvö þúsund pappaspjöldum hefur þegar verið komið fyrir á heimavelli Gladbach og eru rúmlega sex þúsund á leiðinni til viðbótar.

Þýsk félög eru að æfa á fullu þessa dagana og stefna á að byrja að spila fótbolta í fyrrihluta maí.

Gladbach er í fjórða sæti deildarinnar sem stendur, með 49 stig eftir 25 umferðir, sex stigum eftir toppliði FC Bayern.


Athugasemdir
banner
banner