Christian Benteke hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá Crystal Palace. Belgíski framherjinn hefur ekki náð að standa undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans þegar hann gekk í raðir Palace árið 2016 frá Liverpool.
Benteke kostaði Palace 32 milljónir punda árið 2016 og byrjaði vel hjá félaginu. Hann skoraði fimmtán mörk á fyrsta tímabilinu sem gladdi Ernina í Palace mikið.
Síðan þá hefur Benteke aðeins skorað fjögur mörk í 47 leikjum.

Palace er sagt hafa fengið fimmtán milljón punda tilboð í framherjann frá Shandong Luneng Taishan í Kína. Þar spilar Marouane Fellaini, samlandi Benteke.
Benteke er sagður fá um 150 þúsund pund í vikulaun ef hann skrifar undir hjá kínverska félaginu.
Athugasemdir