Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 25. maí 2019 13:00
Oddur Stefánsson
Heimild: Evening Standard 
Tadic grét alla nóttina
Mynd: Getty Images
Dusan Tadic leikmaður Ajax segir að hann hafi grátið í alla nótt eftir að Ajax datt út úr Meistaradeildinni geng Tottenham núna á dögunum.

Lucas Moura skoraði þrennu til að koma Tottenham í úrslit. Hann skoraði sigurmarkið í einvíginu á 96. mínútu.

Tadic hefur verið algjör lykilmaður hjá Ajax á þessu tímabili og hefur hann skorað 38 mörk í öllum keppnum. Ajax vann um daginn tvennu í Hollandi þegar þeir unnu bæði deildina og bikarinn.

Tadic sagði í viðtali við Ajax Life að hann hafi farið heim og grátið alla nóttina eftir tapið gegn Tottenham.

„Það er langt síðan Ajax vann tvennuna," sagði Tadic „ Við urðum hungraðari í meira, við gerðum Meistaradeildina spennandi, við áttum skilið að spila í úrslitunum."

„Þegar ég er miður mín, þá finnst mér gott að gráta, að fórna sjálfum sér fyrir tilfinningunum, þá nær maður þessu öllu úr kerfinu, ég held að það leið ekki stunda þar sem ég grét ekki."

Tadic hefur verið frábær á þessu tímabili. Eftir erfiða dvöl hjá Southampton hefur hann greinilega fundið sinn takt aftur í Hollandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner