KA lagði ÍBV að velli 2-0 í Pepsi Max-deildinni í dag þökk sé tveimur mörkum á lokakafla leiksins.
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson var dómari leiksins en meiddist eftir aðeins sjö mínútur. Gylfi Már Sigurðsson var aðstoðardómari og tók hann við flautunni á meðan Eðvarð Eðvarðsson, fjórði dómari, fékk flaggið í hendurnar.
Gylfi Már kláraði fyrri hálfleikinn og þegar leikmenn komu aftur inn á völlinn fyrir síðari hálfleik var hann kominn aftur á hliðarlínuna.
Sigurður Hjörtur Þrastarson tók við flautunni af Gylfa og brá Eðvarð sér aftur í starf fjórða dómara.
⚽️ Síðari hálfleikur er hafinn! Engar breytingar á liðunum í hálfleik. En kominn er nýr dómari. Sigurður Þrastarsson kominn á flautuna. Þriðji dómari leiksins. Hlýtur að vera met! #LifiFyrirKA
— KA (@KAakureyri) May 25, 2019
Athugasemdir