Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. maí 2020 18:01
Brynjar Ingi Erluson
Giggs segir Zanetti erfiðasta andstæðinginn - „Hann nefbraut mig"
Ryan Giggs
Ryan Giggs
Mynd: Getty Images
Velski landsliðsþjálfarinn Ryan Giggs var í viðtali við MUTV á dögunum en hann fór þar yfir ferilinn og nefndi þar erfiðasta andstæðinginn á ferlinum.

Giggs er einn sigursælasti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi en hann vann úrvalsdeildina þrettán sinnum á 24 árum sínum hjá United.

Hann mætti oft afar öflugum leikmönnum en það var einn leikmaður sem reyndist honum erfiðari en allir aðrir. Það var Javier Zanetti, sem lék með Inter á Ítalíu.

„Erfiðasti leikmaður sem ég hef mætt er Javier Zanetti," sagði Giggs.

„Hann hljóp allan leikinn og spilaði eitt sinn á miðjunni þannig honum leið vel með boltann. Hann gat varist, var harður og nefbraut mig einu sinni í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Hann var með alla þá eiginleika sem varnarmaður þarf," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner