Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, fékk Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliða til að skellihlægja á fréttamannafundi í dag fyrir leikinn gegn Króatíu á morgun.
Fréttamenn eiga að kynna frá hvaða fjölmiðli þeir eru áður en þeir bera upp spurningar á fréttamannafundum.
Hörður sagðist vera frá tímaritinu Bleikt og Blátt áður en hann bar upp spurninguna. Aron skellihló í smá tíma í kjölfarið.
„Þessi var góður Höddi, ég gef þér það," sagði Aron áður en hann svaraðu spurningunni.
Bleikt og Blátt var erótískt tímarit sem var gefið út í tæp tuttugu ár á Íslandi en útgáfu þess var hætt árið 2008.
Arnar Björnsson, frá Stöð 2, átti næstu spurningu og hann kynnti sig frá Lögbirtingablaðinu eftir glensið hjá Herði.
Viðstaddir höfðu gaman að gríninu hjá Herði og í lok fréttamannafundar sagði Heimir þjálfari brosandi: „Verð ég á forsíðunni hjá Bleikt & Blátt?"
Fyrirliðinn @ronnimall hló dátt að Bleikt og Blátt-sprellinu. pic.twitter.com/axFb3uFo54
— Sportið á Vísi (@VisirSport) June 25, 2018
Athugasemdir