Athygli hefur vakið að Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands, raðar sjálfur upp keilum fyrir æfingar liðsins og fyrir upphitun á keppnisvöllunum.
Flestir aðrir þjálfarar á HM láta aðra í þjálfarateyminu sjá um slíkt. Heimir var spurður út í þetta á fréttmannafundi í dag.
Flestir aðrir þjálfarar á HM láta aðra í þjálfarateyminu sjá um slíkt. Heimir var spurður út í þetta á fréttmannafundi í dag.
„Þetta er bara vani og rútína. Ég er búinn að þjálfa krakka og áhugamannafélög. Þar gerir maður þetta allt sjálfur," sagði Heimir.
„Ég veit að það eru ekki margir þjálfarar í lokakeppni HM sem stilla upp keilum en þetta er bara rútína sem ég vil gera. Það er ekkert flóknara."
Ísland mætir Króatíu í Roston við Don klukkan 18:00 á morgun en liðið þarf sigur þar til að eiga möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit.
Athugasemdir