Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 25. júní 2018 10:19
Magnús Már Einarsson
Jói Berg kláraði æfingu - Með gegn Króatíu
Icelandair
Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kantmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er klár í slaginn fyrir leik Íslands og Króatíu annað kvöld. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag.

Jóhann meiddist á kálfa gegn Argentínu í fyrsta leik á HM og hann var fjarri góðu gamni í tapinu gegn Nígeríu.

„Jói æfði með okkur í dag og lítur vel út. Hann hefur lagast með hverjum deginum og tók fullan þátt í dag. Hann er að öllum líkindum leikfær á morgun," sagði Heimir á fréttamannafundi í dag.

Allir aðrir leikmenn íslenska liðsins eru einnig leikfærir og klárir í slaginn fyrir leikinn gegn Króatíu á morgun að sögn Heimis.

Ísland mætir Króatíu klukkan 18:00 annað kvöld í Rostov við Don en einungis sigur dugir til að eiga möguleika á sæti í 16-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner