Fjölmiðlameistaratitillinn í keilu helst á Húsavík eftir að Arnar Björnsson á Stöð 2 vann dramatískan sigur í Rostov við Don í gær.
Á stórmótum í boltaíþróttum er hefð fyrir því að íslenskir fjölmiðlamenn keppi í keilu og fór mótið fram í Rússlandi í gær.
Henry Birgir Gunnarsson var meistari eftir að hafa unnið sigur þegar EM í handbolta fór fram í Króatíu í janúar en Haukur Harðarson hafði unnið á EM kvenna í Hollandi í fyrra.

Henry vann liðakeppnina í gær ásamt Bödda The Great en Fótbolti.net hafnaði þar í öðru sæti.
Það tók Arnar Björnsson smá tíma að keila sig í gang í gær en á endasprettinum í einstaklingskeppninni var hann funheitur og lagði Bödda The Great á dramatískan hátt. Sindri Sverrisson á Morgunblaðinu hafnaði í þriðja sæti.
Næsta fjölmiðlamót í keilu fer fram í janúar þegar næsta stórmót í handbolta fer fram.
Athugasemdir