Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. júní 2018 09:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Þjálfari Póllands: Töpuðum gegn mjög góðu liði
Adam Nawalka er landsliðsþjálfari Póllands.
Adam Nawalka er landsliðsþjálfari Póllands.
Mynd: Getty Images
Pólland er úr leik á Heimsmeistaramótinu í fótbolta í Rússlandi eftir 0-3 tap gegn Kólumbíu í gærkvöldi, en liðið tapaði einnig fyrsta leik sínum á mótinu gegn Senegal.

Landsliðsþjálfari Póllands, Adam Nawalka var að vonum svekktur þegar hann mætti í viðtal eftir leikinn.

„Mér fannst leikmennirnir gera sitt besta allan leikinn, við töpuðum á móti mjög góðu liði og við verðum bara að sætta okkur við það."

„Mér fannst leikurinn mjög jafn þangað til að þeir komust yfir, eftir það þurftum við að sækja á fleiri mönnum, mér finnst mjög leiðinlegt hvernig þetta endaði," sagði Nawalka.

Pólland á enn eftir að spila einn leik á mótinu en þeir mæta Japan á fimmtudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner