Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 25. júní 2019 10:45
Elvar Geir Magnússon
Arsenal á að leggja áherslu á að fá Andersen
Joachim Andersen.
Joachim Andersen.
Mynd: Getty Images
Íþróttafréttamenn Mirror velta því fyrir sér hvaða leikmann Unai Emery, stjóri Arsenal, ætti að leggja áherslu á að fá í sumarglugganum,

„Unai Emery verður að bæta liðið um allan völl en að styrkja vörnina er algjört forgangsatriði," segir Andy Dunn.

„Joachim Andersen hefur verið orðaður við Arsenal og félagið hefur efni á honum. Þessi 23 ára Dani er enn að þróast en hefur alla kosti sem nútíma varnarmaður þarf að hafa. Hann er í háum klassa og er leikmaður sem Arsenal vantar."

Aðrir starfsmenn Mirror nefna að Arsenal ætti að reyna við Kalidou Koulibaly, Jamaal Lascelles, Wilfried Zaha og Diego Godin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner