Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. júní 2019 10:58
Elvar Geir Magnússon
Beckham aftur mættur til Íslands - Veiðir með Björgólfi
Mynd: Instagram
David Beckham er sannur Íslandsvinur en hann er nú staddur hér á landi og birtir myndir af sér í náttúrunni á Instagram. Úrvals landkynning!

Fótboltagoðsögnin er með vinum sínum Björgólfi Thor Björgólfs­syni viðskiptamanni og breska leik­stjór­an­um Guy Rit­hcie. Þeir veiddu líka á Íslandi í fyrra.

„Í þetta skiptið voru þeir fé­lag­ar að veiða í Haffjaraðará á Snæ­fellsnesi og virðast svo hafa skellt sér út á Breiðafjörðinn og gætt sér á fersku sjáv­ar­fangi um borð," segir í frétt mbl.is.

Beckham þarf ekki að kynna fyrir lesendum en hann gerði garðinn frægan með enska landsliðinu, Manchester United, Real Madrid og fleiri stórliðum á ferli sínum. Í dag er hann eigandi nýstofnaðs liðs í MLS-deildinni bandarísku, Inter Miami. Liðið verður með í MLS á næsta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner