ÍA steinlá 3-0 fyrir Þrótti í toppslagnum í Inkasso-deild kvenna í kvöld. ÍA liðið virtist aldrei mæta almennilega til leiks og var Bryndís Rún fyrirliði liðsins svekkt í leikslok.
„Mér fannst við bara aldrei byrja leikinn. Frá fyrstu mínútu vorum við undir í baráttu, sem hefur verið okkar aðaleinkenni í sumar, en það var bara aldrei með okkur í dag og við náðum aldrei upp neinu spili."
Liðin mættust í 16-liða úrslitum bikarsins þann 31.maí sl.l þar sem Þróttur komst 2-0 yfir en ÍA kom til baka og vann 3-2. Það var eitthvað sem vantaði í kvöld.
„Heima upp á Skaga þegar við náðum að snúa þessu við þá einmitt vorum við að berjast og höfðum fulla trú á verkefninu en það var bara ekki í dag. Við vorum bara ekki nógu vel stemmdar" sagði Bryndís Rún.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 0 ÍA
Næsti leikur ÍA er á föstudaginn í 8-liða úrslitum bikarsins gegn Fylki. ÍA þarf að sýna betri leik ef þær ætla sér áfram í undanúrslitin.
„Já heldur betur, við verðum bara að gera eitthvað miklu, miklu betur en þetta. Þetta var alveg hræðilegt. Ég held við séum bara alveg staðráðnar í því að snúa þessu við, sýna hvað við getum" sagði Bryndís Rún.
Athugasemdir