Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. júní 2019 17:56
Arnar Helgi Magnússon
HM kvenna: Ítalía í 8-liða úrslit - Kína heldur heim á leið
Mynd: Getty Images
Ítalía 2 - 0 Kína
1-0 Valentina Giacinti ('15 )
2-0 Aurora Galli ('49 )

Ítalía tryggði sér farseðil í 8-liða úrslit Heimsmeistaramótsins með 2-0 sigri á Kína í dag.

Ítalir komust yfir eftir tæplega stundarfjórðung en þá setti Valentina Giacinti boltann í autt markið. Peng Shimeng, markvörður Kína, varði boltann þá út í teig og Giacinti var fljót að hugsa og setti boltann í netið.

Sóknarþungi Kínverja var mikill undir lok fyrri hálfleiksins og hefði liðið hæglega getað jafnað metin.

Aurora Galli tvöfaldaði forystu Ítala í upphafi fyrri hálfleiks með skoti af löngu færi. Spurning hvort að markvörður Kína hefði getað gert betur þar.

Liðsmenn Kína náðu ekki að ógna marki Ítala mikið eftir það og lokatölur því 2-0 og þáttöku Kína á mótinu þar með lokið. Það kemur í ljós síðar í kvöld hvort að Holland eða Japan verður mótherji Ítalíu í 8-liða úrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner