7. umferðin í Pepsi Max-deild kvenna lauk í gær með þremur leikjum.
Óvæntustu úrslit umferðarinnar var 5-0 sigur nýliða Keflavíkur á Stjörnunni en þetta var þar með annar sigurleikur Keflavíkur í röð í deildinni og er liðið komið uppúr fallsæti. Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur er þjálfari umferðarinnar.

Audrey Baldwin er í markinu en hún átti stórleik þrátt fyrir 2-1 tap HK/Víkings gegn Breiðabliki í nágrannaslag. Sigurmark Breiðabliks kom í uppbótartíma frá Öglu Maríu Albertsdóttur . Ásta Eir Árnadóttir er fulltrúi Breiðabliks í varnarlínunni.
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir leikmaður Selfoss er einnig í liði umferðarinnar en þær gerðu 1-1 jafntefli gegn Fylki á útivelli í umferðinni en bæði lið eru rétt fyrir ofan fallsætin.
Valur fór til Eyja og vann þar 3-1 sigur eftir að hafa lent 1-0 undir. Hlín Eiríksdóttir var best Valsstelpna í leiknum en hún jafnaði metin fyrir Val í lok fyrri hálfleiks.
KR-ingarnir, Guðmunda Brynja Óladóttir og Katrín Ómarsdóttir eru í liði umferðarinnar eftir þeirra frammistöðu í 2-2 jafntefli gegn Þór/KA um helgina.
Þá eru Keflvíkingarnir, Natasha Anasi, Dröfn Einarsdóttir og Aníta Lind Daníelsdóttir í liði umferðarinnar eftir frækinn sigur á Stjörnunni 5-0.
Sjá einnig:
Lið 6. umferðar
Lið 5. umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Athugasemdir